Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Súlur Björgunarsveit

Fréttir

Uppstillingarnefnd tekin til starfa

Aðalfundur Súlna verður haldinn þann 14. mars og hefur uppstillingarnefnd nú tekið til starfa.
Formaður nefndarinnar, skipaður af stjórn, er Gunnar Agnar Vilhjálmsson en auk hans eru í nefndinni þeir Jóhann Lárus Baldursson og Vagn Kristjánsson sem kjörnir voru á síðasta aðalfundi.

Samkvæmt 9. grein í lögum félagsins fer fram kosning til eftirfarandi embætta á aðalfundi: Árlega er kosið er um þrjár stöður í stjórn til tveggja ára auk þess sem formaður er kosinn árlega. Einnig er kosið um stöður tveggja manna í uppstillingarnefnd og tvo skoðunarmenn reikninga.

Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá undirrituðum. Þeir sem hafa hug á að bjóða sig fram þurfa að vera búnir að láta uppstillingarnefnd vita af framboðinu ekki seinna en viku fyrir aðalfund, skv. reglugerð um uppstillingarnefnd sem sett hefur verið af stjórn Súlna. Því er ekki tekið við framboðum til embætta eftir 7. mars n.k.

Akureyri 15. febrúar 2011
Gunnar Agnar Vilhjálmsson


Úlnliðsbrotinn gönguskíðamaður


Í gær var sveitin kölluð út vegna slasaðs breta á hálendinu. Fóru 5 vélsleðar og 3 bílar frá Súlum til aðstoðar auk tveggja bíla frá Dalbjörgu. Var talið að hann væri úlnliðsbrotinn eftir fall. Maðurinn er breskur og hugðist ganga á skíðum þvert yfir landið að norðan, suður í Vík, í fjáröflunarskyni.

Vel gékk að komast inn á hálendið þrátt fyrir nokkuð þungt færi. Þyrla LHG náði síðan í manninn og kom honum til byggða.


Aðstoð vegna leka

Síðastliðinn föstudag var sveitin fengin til aðstoðar vegna vatnsleka á þremur stöðum í bænum. Ástæða vatnslekanna var að mikill snjór hafði safnast á þök húsanna, m.a. um nóttina og talsverð þýða kom ofan í það. Fóru 4 meðlimir Súlna á þessa staði og hreinsuðu snjó og ís af þökum á þessum stöðum en á einum staðnum þurfti aðstoð bíls með körfu til að komast á þakið.

Gleðilegt nýtt ár!

Gamlárskvöld á Akureyri - Hildur Leonardsdóttir
Súlur björgunarsveitin á Akureyri óskar landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs og þakkar þann mikla stuðning og hlýhug sem var mjög áberandi í flugeldasölunni. Rekstur björgunarsveita er mikilvægt samfélagslegt verkefni og það er í raun stuðningur almennings sem leggur grunninn að því öfluga starfi sem við sinnum.

Gleðilegt ár og takk fyrir stuðninginn :)  



Hross föst í skurði o.fl.


Síðastliðinn föstudag var útkall vegna tveggja hrossa sem sátu föst í skurði. Mikið vatn var í skurðinum og stóðu aðeins höfuð þeirra upp úr. Fimm björgunarsveitarmenn fóru á staðinn með þurrgalla til að vinna í vatninu en fara þurfti ofan í skurðinn til að koma böndum á hrossin. Tók um klukkutíma að koma hrossunum upp úr skurðinum.
Lesa meira

Leit lokið


Hluti af einum jöklaleitarflokknum

Svíinn sem leitað hefur verið að á og við Sólheimajökul síðan á fimmtudag fannst rétt fyrir hádegi í dag.  Viðbúnaður á leitarsvæðinu var umtalsverður og sem dæmi um það voru hart nær 300 manns við leit í dag.  Alls komu að leitinni um 40 manns frá Súlum, þar með talið svæðistjórnarfólk, jöklaleitarflokkar, almennir leitarflokkar og leitarhundar.  Gert er ráð fyrir að síðasti flokkur á vegum Súlna skili sér í hús þegar líður á nóttina.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf