Aðstoð á Öxnadalsheiði Farið var í fyrstu ófærðaraðstoð á þessu hausti seint í gærkvöldi á Öxnadalsheiði þegar lögreglan óskaði eftir aðstoð sveitarinnar
Farið var í fyrstu ófærðaraðstoð á þessu hausti seint í gærkvöldi á Öxnadalsheiði þegar lögreglan óskaði eftir aðstoð sveitarinnar við að ná upp bíl sem lent hafði utan vegar efst í Bakkaselsbrekku. Gekk greiðlega að ná bílnum aftur upp á veg. Enn fremur var nokkrum
öðrum vegfarendum sem lent höfðu í vandræðum komið til aðstoðar.
Komið var snjóföl á veginn yfir heiðina og talsverð hálka.