föstudagur 07.janúar 2011
Óskað var eftir aðstoð vegna ófærðar við eldútkall hjá Slökkvilið Akureyrar kl. 00:20. Töluverður eldur var í útihúsi við Jódísarstaði í Eyjafirði. Vegna veðurs og ófærðar gékk illa að komast á staðinn. Súlur 2 og 4 fóru til aðstoðar og tóku með lögreglumann. Þegar komið var á staðinn var húsið nánast bunnið niður. Farið var í að fergja bárujárn og fl. á staðnum.
Nokkuð hefur verið um aðstoð við vegfarendur innanbæjar vegna ófærðar. Veður er mjög slæmt og færð orðin erfið í bænum. Þrír bílar og 15 menn hafa komið að þessari aðstoð í nótt.


