Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Æfingagönguferð á Kaldbak Vitur maður sagði eitt sinn að best væri að æfa fjallgöngur með því að ganga á fjöll!  Því verður æfingaganga á Kaldbak

Á næstunni

Vitur maður sagði eitt sinn að best væri að æfa fjallgöngur með því að ganga á fjöll! 
Því verður æfingaganga á Kaldbak sunnudaginn 18. apríl. 
Lagt verður af stað kl. 9:00 úr H-12 og líklega verður gott að hafa annað hvort brodda eða fjallaskíði undir fótunum :)

Allir hvattir til að mæta og sérstaklega þeir sem stefna á Hnúkinn, þetta verður létt snjóbrekkulabb í anda Hnúksins!

Á heimasíðu Kaldbaksferða má lesa ýmsar staðreyndir:

"Kaldbakur er 1,173 m hár og er hæstur tinda við norðanverðan Eyjafjörð, með útsýni allt austur á Langanes og inn á hálendi Íslands. Hann er talinn vera ein af orkustöðvum Íslands og ferð upp á hann er ógleymanleg lífsreynsla. Gönguferð upp á fjallið tekur um þrjár klukkustundir. Í vestanverðum toppi fjallsins er jökulskál og þar er snjór og ís allt árið um kring."

Hliðskjálf Norðlendinga

Skammt frá Grenivík er fjallið Kaldbakur, það er hátt á fjórða þúsund fet á hæð, það gengur nálega í sjó fram og speglaðist í sænum, hrikalegt og tilkomumikið. Þegar Norðlendingar óttast ís, - hann er þeirra versti óvinur, - þá ganga þeir upp á Kaldbak til þess að skyggnast um eftir fjanda þeim, og óska honum norður og niður ef að eygist. 
Má svo að orði kveða að af Kaldbak sjáist yfir heim allan, þar er nokkurs konar Hliðskjálf þeirra Norðlendinga; þaðan sést yfir allan Skjálfanda, og afar langt á sæ út; Herðubreið, sem er suður undir Vatnajökli, öll Mývatnsfjöll, Eyjafjörður allur, Hnjóskadalur, Bárðardalur, Hörgárdalur og Svarfaðardalur o.s.frv. þaðan sést austur á Sléttu og vestur undir Horn.

Sig. Júl. Jóhannesson. (Ferðapistlar VIII. Dagskrá 26. nóv. 1898.)



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf