Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Björgun 2010 Ráðstefnan Björgun hefur verið haldin annað hvert ár frá 1990. Í gegnum árin hefur ráðstefnan vaxið og dafnað og er nú stór, alþjóðleg

Á næstunni

Ráðstefnan Björgun hefur verið haldin annað hvert ár frá 1990. Í gegnum árin hefur ráðstefnan vaxið og dafnað og er nú stór, alþjóðleg ráðstefna, með yfir 60 fyrirlestrum í fjórum sölum. Allir ættu því að finna eitthvað við sitt hæfi.

Björgun verður haldin 22.-24. október 2010. Þátttakendum gefst kostur á að sækja námskeið sem haldin eru dagana fyrir ráðstefnuna auk þess sem margt verður sér til gamans gert utan hinnar hefðbundnu dagskrár.

Fyrirlesarar á Björgun koma víða að, frá Norðurlöndum, Englandi, Bandaríkjunum, Kína og fleiri stöðum og á hið sama við um gesti ráðstefnunnar. Árið 2006 voru fyrirlestrar í fyrsta skipti túlkaðir, af ensku á íslensku, og öfugt, og er það liður í því að þjónusta betur þann fjölda erlendra sem innlendra gesta sem sækja Björgun. Sami háttur verður hafður á í ár.

Ráðstefnan verður haldin á Grand Hóteli í Reykjavík.


 

 


 

 


.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf