mánudagur 16.maí 2011

Liðin voru Súlur Alfa, sem höfðu titil að verja frá fyrri leikum, og Súlur Dívur sem samanstóð af kvennlega hluta sveitarinnar. Leysa þurfti ýmsar þrautir sem flestar reyndu á þekkingu björgunarmannsins allt frá því að bjarga barni úr læstum bíl í að þvera straumvatn. Baráttan var hörð og var ýmsum brögðum beitt við að safna stigum.
Að kvöldi var árshátíð Landsbjargar og risa eurovision partý - loftið var spennuþrungið þegar úrslitin voru kveðin (þ.e. leikanna, vinir Sjonna fengu ekki eins mörg stig) og greina mátti tár á kvarmi er nafnið Alfa var kallað í upp!
Til lukku elskurnar, þið eruð bestir (í flestu)!
luv
ykkar Dívur - kyss kyss


