laugardagur 04.júní 2011
Eftir undirbúningsfund var ákveðið að halda skuli á Snæfell hæsta tind utan jökla á Íslandi, 1833 m hátt. Fjallið er megineldstöð úr líparíti og móbergi. Það stendur um 20 km norðaustan Brúarjökuls í norðanverðum Vatnajökli. Uppgangan er tiltölulega auðveld frá Snæfellsskála en á toppi fjallsins er sísnævi þaðan sem mikið og víðfeðmt útsýni er til allra átta.


Gangan er um 1.000 m hækkun og um 7 km upp (14 km alls). Áætlaður uppgöngutími er 3,5-4 klst.
ATH - Vegna slæmrar þátttöku var ákveðið að sameina þessa ferð við næturferð Wildboys. Brottför frá Egilsstöðum kl 21:00. Sjá nánar á heimasíðu félagsins, http://wildboys.123.is/.
Umsjónarmaður ferðar er Sigmar Arnarsson
sími 869-6201

