Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Eftirgrenslan eftir þýskum ferðamanni Í gærkvöldi og í nótt stóð yfir eftirgrennslan eftir þýskum ferðamanni sem saknað er á Sprengisandi. Maðurinn, sem

Eftirgrenslan eftir þýskum ferðamanni

Í gærkvöldi og í nótt stóð yfir eftirgrennslan eftir þýskum ferðamanni sem saknað er á Sprengisandi. Maðurinn, sem er á göngu á svæðinu, var í sms sambandi við fjölskyldu sína í Þýskalandi í gær en hann var þá staddur sunnan Nýjadals. Ætlaði hann að vera aftur í sambandi í gær en ekkert hefur heyrst frá honum.

Sleðamenn frá Flugbjörgunarsveitinni á Hellu, Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri og Dalbjörg hafa kannað með mannaferðir í skálum á svæðinu, án árangurs.  Ákvörðun um frekari leit að manninum verður tekin þegar nánari rannsóknarvinna hefur farið fram og unnið úr þeim upplýsingum sem nú liggja fyrir.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf