miđvikudagur 17.september 2008
Í nótt gekk yfir landið mikið hvassviðri og var sveitin kölluð út til að sinna nokkrum verkefnum á Akureyri. Ma fauk timbur og annað byggingarefni frá nýbyggingu Naustaskóla í Naustahverfi. Þá þurfti að fjarlægja tré á nokkrum stöðum í bænum sem höfðu brotnað og fallið niður á götu.
Sinnti sveitin alls 5 aðstoðarbeiðnum og tóku 9 menn þátt í aðgerðum frá sveitinni.


