Lagt var af stað klukkan 8:30 frá H-12 og þökkum við Andrési fyrir að keyra okkur. Í kringum níu leitið vorum við lagðir af stað inn Fnjóskadalinn. Veðrið var nokkuð hlýtt með smá vindi á köflum. Um hádegisbil vorum við komnir að Gönguskarði og undruðumst við á velgengni ferðarinnar. En þar byrjuðu vandræðin. Í Gönguskarði var allt ísilagt og ekki bætti það að fyrir miðju skarðinu byrjaði án efa einn öflugasti stormur sem við höfum lent í. En áfram gengum við. Á ákveðnum punkti var staðan orðin sú að fyrir hver fjögur skref sem við fórum áfram fukum við þrjú aftur og fljótlegra var orðið að skríða heldur en að ganga.
Eftir sex klukkutíma baráttu við vindinn og ísinn komumst við loksins út úr skarðinu. Í Garðsárdalnum tókum við þá ákvörðun að ganga hann líka og reyna að komast heim sem fyrst þar sem nú höfðum við meðvind. Heilt yfir þá gekk sá kafli nokkuð vel en þó var það alltaf ákveðin raun um viljastyrk þegar að vindurinn feykti okkur niður. Þegar að við loksins sáum bílinn eftir að hafa gengið 27 kílómetra á fjórtán klukkutímum lærðum við nýja skilgreiningu á alsælu. Þyrstir, svangir, aumir og blautir hlupum við síðustu metrana þar sem Kári Erlings tók á móti okkur.
Elvar Már Waage Jóhannsson (Myndir: Kristinn Vignisson)

