Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Hross föst í skurði o.fl. Síðastliðinn föstudag var útkall vegna tveggja hrossa sem sátu föst í skurði. Mikið vatn var í skurðinum og stóðu aðeins höfuð

Hross föst í skurði o.fl.

Síðastliðinn föstudag var útkall vegna tveggja hrossa sem sátu föst í skurði. Mikið vatn var í skurðinum og stóðu aðeins höfuð þeirra upp úr. Fimm björgunarsveitarmenn fóru á staðinn með þurrgalla til að vinna í vatninu en fara þurfti ofan í skurðinn til að koma böndum á hrossin. Tók um klukkutíma að koma hrossunum upp úr skurðinum.
Þetta er þriðja útkallið á stuttum tíma en þriðjudaginn 29. nóvember fór sveitin til að aðstoða við að afferma fluttningabíl sem oltið hafði á Öxnadalsheiði kvöldið áður. Fór góður hópur á staðinn og affermdi blandaðan farm úr bílnum en farmiurinn var mis illa farinn eftir óhappið.  Sunnudaginn 4. des var síðan annað útkall út af verðmætabjörgun en þá var vatn farið að leka inn af þaki Becromal en talsvert var af snjó og ís á þakinu. Vaskur hópur fór á staðinn og gat komið í veg fyrir frekari leka.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf