Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Hvannadalshnúkur!   Brottför er áætluð á miðvikudeginum 12. maí kl. 13:00 til að vera komin á sómasamlegum tíma í Skaftafell en seinna ef

Á næstunni

Hvannadalshnúkur
Hvannadalshnúkur


 

Brottför er áætluð á miðvikudeginum 12. maí kl. 13:00 til að vera komin á sómasamlegum tíma í Skaftafell en seinna ef veður er ekki spennandi fyrir fimmtudaginn hvort eð er (þetta ræðst allavega á þriðjudeginum)

Uppganga verður áætluð á föstudeginum nema veðurspá verði óhagstæð, þá höfum við fimmtudag eða laugardag uppá að hlaupa.


Farnar verða tvær æfingagöngferðir fyrir Hvannadalshnúk og er mælst til þess að fólk mæti allavega í aðra hvora ferðina áður en haldið verður á topp toppanna, þ.e. Kaldbakur 18. apríl og Kerling 2. maí.

 

Gangan á Hnúkin er að mestu löng snjóbrekka og því reynir á þrek og úthald en ekki beint tæknilegt klifur - við viljum því hvetja sem flesta til að taka þátt í þessum æfingaferðum og stefna á stóra hópaferð! Gengið verður síðan upp í minni hópum s.s. eftir hraða göngumanna eða útbúnaði eins og skíðahóp. Hvort Virkisjökuls- eða Sandfellsleið verður fyrir valinu mun fara eftir aðstæðum en orðrómur er um að lítið hafi snjóað á Hnúknum í vetur, sem og öllu Suðurlandinu, og því sprungur víða opnar…

 

 

 Leiðbeinandi útbúnaðarlista má t.d. sjá á síðu Jökuls Bergmanns (á listann vantar sigbelti, exi, brodda og hjálm)

http://www.bergmenn.com/is/mos/14/

 Ef fólk treystir sér ekki til að ganga á Hnúkinn sjálfann er fjöldi léttra gönguleiða í Skaftafelli og viljum við hvetja sem flesta til að taka þátt í þessari ferð J




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf