Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Leit á Langjökli Tækjahópar björgunarsveita á svæði 11 voru kallaðir út um kl. 21 í gærkvöldi til að taka þátt í leitinni að vélsleðafólkinu sem saknað

Leit á Langjökli

Tækjahópar björgunarsveita á svæði 11 voru kallaðir út um kl. 21 í gærkvöldi til að taka þátt í leitinni að vélsleðafólkinu sem saknað var á Langjökli.  Frá Súlum fór 12 manna hópur á 3 bílum með snjóbíl og 4 vélsleða.

Farið var vestur í Blöndudal og inn á Kjöl með stefnu á Skálpanes til liðs við björgunarsveitir sem voru þar fyrir.  Um kl. 01:30 fannst síðan fólkið og voru þau bæði við þokkalega heilsu en orðin mjög köld og hrakin.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf