Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Gönguferð í Mývatnssveit - 31. okt Dagsferð á vegum Nýliða 2

Á næstunni

Dagsferð á vegum Nýliða 2


Gengið verður frá Leirhnjúk í Mývatnssveit að Grjótagjá og þar verður hægt að baða sig.
Brottför er frá H12 klukkan 09:00 næstkomandi sunnudag, og er því æskilegt að mæting sé um 08:45
Keyrt verður að Leirhnjúk og þaðan gengið niður með mikilli misgengissprungu, yfir hraun frá mývatnseldun, uppá Dalfjall og gengið með því eftirlöngu en þaðan er mikið útsýni til allra átta. 
Þegar Dalfjallið er sigrað komum við að veginum að Námaskarði en eftir honum er gengið og afleggjarinn að Grjótagjá þar sem við munum baðast.
Áætluð heimkoma er á milli 16 og 17, æskilegt er að fólk taki með sér sundföt og nesti.

Ferðinni verður stjórnað af Berki (867 7131) og Jóni Geir í nýliðum 2.

Skráning fer fram á síðunni og skal skrá sig fyrir kl. 17 á laugardag svo við getum áætlað fjölda í bíla


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf