Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Nýliðar 2 í Laugafelli Þann 15. október fóru Nýliðar II í jeppaferð upp á hálendið.

Nýliðar 2 í Laugafelli

Nýliðar vaða yfir Eyjafjarðará
Nýliðar vaða yfir Eyjafjarðará

Þann 15. október fóru Nýliðar II í jeppaferð upp á hálendið.


 

Sjö hressir nýliðar voru þar á ferð ásamt fjórum bílstjórum. Haldið var af stað upp í Laugafell til að gista þar um nóttina, nýliðunum var svo hent út úr bílnum með GPS og nokkra punkta og sagt að labba síðustu kílómetrana að skálunum. Þegar komið var í Laugafell skelltu nokkrir sér í laugina og slökuðu á undir stjörnubjörtum himni og norðurljósum. Um nóttina átti að vera útkallsæfing en þar sem fórnalambið nennti ekki á fætur til að týnast varð ekkert úr því og fengu allir að sofa vært til klukkan 8.

   Næsta morgun var haldið af stað í Grána, aftur var nýliðunum hent út og þurftu þeir nú að vaða yfir á til að komast á leiðarenda, gekk það áfallalaust. Í Grána var stoppað og étið nesti. Var svo farið í Landakot þar sem sett hafði verið upp snjóflóðaýla leit og nýliðunum kennt á ljósavélina.

   Lagt var af stað heim, stoppað var á leiðinni og nýliðunum var hent útí Eyjafjarðaránna og látnir vaða hana þvers og kruss með línu.

 

Elsa, Sigrún og Hjördís, Nýliðum II
 


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf