Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Samæfing björgunarsveita 13. nóvember Laugardaginn 13. nóvember hélt Björgunarsveitin Súlur æfingu fyrir allar björgunarsveitir við Eyjafjörð.Fimm

Samæfing björgunarsveita 13. nóvember

Laugardaginn 13. nóvember hélt Björgunarsveitin Súlur æfingu fyrir allar björgunarsveitir við Eyjafjörð.

Fimm björgunarsveitir af svæði 11 tóku þátt í æfingunni. Sett var upp hópslys við bæinn Hallandsnes í Vaðlaheiði og þurfti að leysa verkefnin á bátum, snjóbíl og jeppum. Fjallabjörgunarhópar leystu verkefni í klettum og bröttum brekkum við sjó og skyndihjálparhópar björguðu sjúklingum úr bílflökum og klöppum við fjöru í samvinnu við bátaáhafnir. Bátaáhafnirnar þurftu auk þess að finna "sjúklinga" á floti í sjónum.

Við hópslysið bættist síðan leit að tveimur týndum einstaklingum ofar í heiðinni en í það verkefni fóru björgunarsveitarmenn með leitarhund og leitarhópar. Þegar hinir týndu fundust var óskað eftir aðstoð snjóbíls til að koma þeim niður á þjóðveg. Þeir voru  síðan fluttir áfram með bílum björgunarsveitanna til Akureyrar, en allir sjúklingar á æfingunni voru fluttir landleiðina eða sjóleiðina af vettvangi.

Áður en æfingunni lauk voru síðan nokkrir hópar kallaðir á Akureyrarflugvöll þar sem bjarga þurfti 11 sjúklingum út úr flugvélaflaki.

Aðstæður voru krefjandi þennan dag, mjög djúpur snjór og hríð gerði mönnum erftitt fyrir en björgunarsveitarfólkið lét það ekki á sig fá og leysti öll verkefnin með prýði.

Alls tóku rúmlega 50 björgunarsveitarmennn þátt í samæfingunni, auk 20 manns sem léku sjúklinga. Þá mönnuðu fimm svæðisstjórnarmenn stjórnstöð auk sama fjölda sem skipulagði og hélt utan um æfinguna.

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá æfingunni. Kristinn Vignisson, Lilja Filippusdóttir og Leonard Birgisson tóku myndirnar.


















Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf