Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Sveitarferð Dagsetning: 31. mars til 3. apríl 2011 Staðsetning:Möðrudalur á Fjöllum. Dagskrá Brottfaratímar eru tveir.

Á næstunni

Dagsetning: 31. mars til 3. apríl 2011
Staðsetning:Möðrudalur á Fjöllum.

Dagskrá
Brottfaratímar eru tveir. Annars vegar kl 19:00 þann 31. mars (fimmtudagur) og hinsvegar kl 19:00 þann 1. apríl (ekki aprílgabb). Heimferð verður um kl 12:00 á sunnudag.
Farið verður með öll tæki sveitarinnar og þau notuð eftir þörfum. Stefnt er á, ef veður leyfir, að ganga á Herðubreið annan hvorn daginn.
Hinn dagurinn verður notaður til útiveru og æfinga. Dagskráin fer eftir veðri en það er ýmislegt hægt að gera, svo sem gönguferðir, klifur í stórbrotnum giljum, sleðaferðir og margt fleira.
Gist verður í húsum í Möðrudagl og er ýmislegt í boði, allt frá tveggja manna herbergjum, til átta manna húsa. Menn koma með rúmföt eða svefnpoka, allt eftir því hvað menn vilja.
Sameiginleg kvöldmáltíð að hætti staðarhaldara verður á laugardagskvöldið, en að öðru leyti sjá men um sig sjálfir í mat og drykk.
Skráning til 24. mars. Það verður eitthvað skráningargjald en því verður stillt í hóf.

Nánari upplýsingar koma síðar.

Fyrir hönd undirbúningshóps:
Gunnar Þór og Elva Hrönn


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf