Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Útkall - Leit að göngufólki á Lágheiði Á níunda tímanum í kvöld barst sveitinni beiðni um að leita að göngufólki á Klaufabrekknadal upp af

Útkall - Leit að göngufólki á Lágheiði

Á níunda tímanum í kvöld barst sveitinni beiðni um að leita að göngufólki á Klaufabrekknadal upp af Lágheiði. 

Ferðaáætlun fólksins var að ganga frá Klaufabrekku í Svarfaðardal yfir á Lágheiði.  Tveir úr hópnum urðu viðskila við aðalhópinn á leiðinni og var farið að óttast um fólkið þegar leið að kvöldi.

Um það leiti sem 20 manna hópur frá sveitinni var að leggja af stað frá Akureyri var leitin afturkölluð þar sem fólkið hafði skilað sér til byggða.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf