Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Útkall - slasaður reiðhjólamaður Súlur, björgunarsveitin á Akureyri var kölluð út seinnipartinn í gær, ásamt lögreglu og sjúkrabíl til aðstoðar slösuðum

Útkall - slasaður reiðhjólamaður

Súlur, björgunarsveitin á Akureyri var kölluð út seinnipartinn í gær, ásamt lögreglu og sjúkrabíl til aðstoðar slösuðum reiðhjólamanni ofarlega í reiðhjólabrautinni í Kjarnaskógi.  Var hlúð að manninum á staðnum, hann síðan borinn á sjúkrabörum að bænum Hvammi þar sem bíll frá sveitinni beið og flutti hann á FSA til frekari skoðunar.

18 manns frá sveitinni tóku þátt í aðgerðinni sem gekk vel.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf