Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Útkall – slasaður gangnamaður í Þorgeirsfirði Um níuleitið í gærkvöld voru björgunarsveitir í Eyjafirði, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar kallaðar út

Útkall – slasaður gangnamaður í Þorgeirsfirði

Um níuleitið í gærkvöld voru björgunarsveitir í Eyjafirði, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar kallaðar út vegna gangnamanns sem hafði slasast þegar hann datt af hestbaki í Þorgeirsfirði, norðan Grenivíkur.

Fjarskiptasamband á svæðinu var takmarkað og því voru upplýsingar um staðsetningu á slysstaðnum og ástand sjúklings takmarkaðar til að byrja með en þegar leið á náðist GSM samband við slysstað. 

Maðurinn var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri laust fyrir miðnætti með þyrlu og er ekki vitað nánar um líðan hans.

Um 60 björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerðinni, þar af um 20 frá Súlum.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf