mánudagur 14.mars 2011
Í gærkveldi (13. mars) var sveitin kölluð út til þess að aðstoða bíla sem lentu í erfiðleikum á Öxnadalsheiði. Fóru 5 manns á 2 bílum til aðstoðar en þar var mjög hvasst og lítið skyggni vegna skafrennings auk þess sem mikil hálka var á veginum.
Á ellefta tímanum í morgun var sveitin síðan kölluð aftur út þar sem þakplötur voru af geymsluhúsnæði syðst í bænum. Fóru 7 björgunarsveitarmenn til að hefta fokið.


