Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Vetrarnámskeið Leitarhund S.L. Um helgina munu Leitarhudnar S.L. standa fyrir vetrarnámskeiði á Ólafsfirði í samstarfi við bj.sveitir á

Vetrarnámskeið Leitarhund S.L.

Snjólfóðaleitarhundur við æfingar
Snjólfóðaleitarhundur við æfingar

Um helgina munu Leitarhudnar S.L. standa fyrir vetrarnámskeiði á Ólafsfirði í samstarfi við bj.sveitir á svæðinu.
Hundateymi víðsvegar af landinu koma saman í fjóra daga og æfa snjóflóðaleit.
Björgunarsveitum af svæði 10 og 11 er velkomið að koma, sjá og vera með.
Á sunnudeginum verður svo ein stór útkallsæfing þar sem snjóflóð verður sett upp á skíðasvæðinu á Siglufirði.

 

Vetarnámskeiðið stendur yfir í fjóra daga. 12. - 15. mars. Snjóflóðaleitarhundar og björgunarsveitarmenn æfa saman í samráði við leiðbeinendur frá Leitarhundum S.L..
Björgunarsveitin á Ólafsfirði fer með aðalskipulagningu með aðstoð frá meðlimum í Súlum, Skagfirðingasveit og Strákum Siglufirði.

Æft verður alla dagana en á sunnudeginum verður stór útkallsæfing sett upp með aðstoð frá bj. á Siglufirði og skíðasvæðinu. Myndatökufólk frá Sagafilm verður á staðnum til að taka upp herlegheitin í heimildarmynd sem verið er að vinna.

Þeir sem hafa áhuga á að koma og vera með okkur og aðstoða er velkomið að kíkja um helgina. Þarna gefst mjög gott tækifæri til að sjá og læra hvernig snjóflóðaleitarhundur vinnur með þjálfaranum sínum. Láta grafa sig niður snjóhús á 3-5 metra dýpi, hjálpa til við að moka upp fólk eða bara einfaldlega að kíkja við, spjalla og fá sér kaffi.

Hlökkum til að sjá þig.

f.h. hundaflokks Súlna
Sara Ómarsdóttir, formaður Leitarhunda S.L.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf