Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Aðstoð á Öxnadalsheiði Skömmu eftir miðnætti í nótt óskaði Lögreglan á Akureyri eftir aðstoð við að ná fólki úr tveimur bílum sem voru í vandræðum vegna

Aðstoð á Öxnadalsheiði

Skömmu eftir miðnætti í nótt óskaði Lögreglan á Akureyri eftir aðstoð við að ná fólki úr tveimur bílum sem voru í vandræðum vegna ófærðar við eyðbýlið Gil, innarlega í Öxnadal.  Fóru fjórir menn frá sveitinni á tveimur bílum. Mættu þeir lögreglubíl í Öxnadalnum sem hafði komist að fólkinu með aðstoð öflugrar dráttarvélar og tekið fólkið með sér til baka en skildu bílana eftir.  Þar sem ekki var vitað um fleira fólk í vandræðum var bílunum frá Súlum snúið við. 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf