Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Aðstoð vegna veðurs og ófærðar Samkvæmt beiðni frá Lögreglunni á Akureyri sendi sveitin tvo bíla vestur á

Aðstoð vegna veðurs og ófærðar


Samkvæmt beiðni frá Lögreglunni á Akureyri sendi sveitin tvo bíla vestur á Öxnadalsheiði á föstudagskvöld til að aðstoða fólk sem lent hafði í vandræðum þar vegna veðurs og ófærðar. Á leiðinni var ökumaður aðstoðaður sem hafði lent utan vegar á Moldhaugnahálsi og annar sem hafnaði utan vegar skammt frá Hrauni í Öxnadal. Á Öxnadalsheiðinni höfðu tveir bílar hafnað utan vegar sem voru aðstoðaðir og einnig bílalest við að komast ofan af heiðinni.

Í gær, laugardag aðstoðaði sveitin fólk sem þurfti að komast frá Húsavík til Akureyrar.  Þurfti fólkið að komast í flug frá Akureyri og var Víkurskarð ófært og þungfært um Dalmynni nema stórum bílum.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf