Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Aðstoð við ökumenn við Laugafell og á Öxnadalsheiði Í dag óskuðu erlendir ferðamenn sem staddir voru austan við Laugafell á bílaleigubíl eftir aðstoð

Aðstoð við ökumenn við Laugafell og á Öxnadalsheiði

Í dag óskuðu erlendir ferðamenn sem staddir voru austan við Laugafell á bílaleigubíl eftir aðstoð þegar þeir festu bíl sinn í snjó í leiðindar veðri. 
Fór einn bíll frá sveitinni til aðstoðar og gekk greiðlega að losa bílinn og var ferðafólkinu síðan fylgt til byggða í Eyjafirði.

Að beiðni lögreglu fór sveitin einnig á Öxnadalsheiði nú í kvöld til að aðstoða ökumenn sem voru þar í vandræðum á vanbúnum bílum vegna mikillar hálku á veginum.  Er þetta önnur ferðin sem sveitin fer á Öxnadalsheiði til aðstoðar ökumönnum á einum sólarhring, en í gærkvöldi voru ökumenn einnig aðstoðaðir þar.

Alls tóku 12 menn frá sveitinni þátt í aðgerðum dagsins


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf