mánudagur 30.nóvember 2009

Myndin tengist ekki fréttinni
Á tíunda tímanum í gærkvöld barst sveitinni beiðni um að aðstoða 4 menn sem komnir voru í sjálfheldu í um 950 metra hæð í Þverbrekkuhnjúk í Öxnadal. Höfðu mennirnir ætlað að klífa fjallið en náðu ekki toppnum fyrir myrkur og fundu því ekki færi leið niður í myrkrinu.
Vegna þess hversu ofarlega í fjallinu þeir voru var ljóst að talsverðan tíma tæki að komast að þeim með nauðsynlegan búnað sem þyrfti, var kallaður út um 20 manna hópur frá sveitinni til aðstoðar sem fór á staðin með mikið af sérhæfðum fjallabjörgunarbúnaði. Þegar á staðin var komið voru bílar með góðum leitarljósum notaðir til að lýsa upp svæðið í fjallinu sem mennirnir voru á og hjálpaði það mikið til. Einnig voru vélsleðar notaðir til að ferja menn og búnað þar sem því var við komið.Svo fór að lokum að mennirnir komu sér niður af fjallinu af sjálfsdáðum og voru þeir vel á sig komnir þrátt fyrir að hafa verið lengi á fjallinu í talsverðum kulda en þeir voru allir mjög vel útbúnir.


