fimmtudagur 25.febrúar 2010

Mynd: Leonard Birgisson
Síðastliðin sunnudag héldu undanfarar sveitarinnar fjallabjörgunaræfingu mánaðarins. Að þessu sinni var æfingin sérlega vegleg og tóku þátt auk undanfarahópsins aðrir þeir sem áhuga hafa á fjallabjörgun, bíla og beltaflokkur sveitarinnar sem og svæðisstjórn.
Í klettunum fyrir ofan Kjarnaskóg höfðu fjórir klifrarar komið sér í ótrúleg vandræði og var það nú verkefni sveitarinnar að koma fjallabjörgunarmönnum á staðinn, bjarga klifrurunum upp, hlúa að þeim og flytja á sjúkrahús.
Björgunarliðið og búnaður var flutt með tækjum sveitarinnar - sleðum, snjóbíl og bílum - óhefðbundna leið í Kjarnaskóg þar sem farið var um Súlumýrarnar frá Fálkafelli að Gamla og þaðan niður að klettunum.
Fjallabjörgunarfólkinu hafði verið skipt í tvo hópa, Undanfara og Undanrennur og þurfti hvor hópurinn að bjarga tveimur klifrurum sem voru í sitthvorum klettinum. Ágætlega gekk að ná klifrurunum upp úr sjálfheldunni, en einum þurfti að bjarga af sillu í klettinum og búa um með tilliti til háls- og hryggáverka áður en hann var hífður upp í börum. Þegar búið var að bjarga klifrurunum upp á brún voru þeir fluttir strax með vélsleðum að snjóbíl og bílum sveitarinnar sem biðu átekta við Gamla og fluttu þá áfram á sjúkrahúsið í Fálkafelli.
Æfingin og samstarf allra gekk vel. Klifrarafórnarlömbin og Friðjón, umsjónarmaður æfingarinnar, eiga hrós skilið fyrir góða æfingu.


