þriðjudagur 12.febrúar 2008

Mynd / Úr myndasafni
Súlur, björgunarsveitin á Akureyri og Hjálparsveitin Dalbjörg í Eyjafirði voru kallaðar út eftir hádegi í dag til að sækja tvo franska skíðamenn að Urðarvötnum á Nýjabæjarafrétti þar sem þeir dvöldu í tjaldi og gátu sig ekki hreyft vegna veðurs. Lögðu þeir af stað úr Eyjafirði í gær og ráðgerðu að ganga suður yfir hálendið á 12 dögum og enda ferðina við Skóga undir Eyjafjöllum.
Voru mennirnir vel búnir og gáfu upp staðsetningu og óskuðu eftir því að þeir yrðu sóttir. Veðurskilyrði á svæðinu voru mjög slæm og voru þeir hjálpinni fegnir og eftir þessar hrakfarir. Voru þeir fluttir til Akureyrar þar sem þeir gista í nótt á hóteli og halda síðan heim á leið á morgun.
19 menn tóku þátt í þessari aðgerð frá sveitunum og notaðir voru 5 vélsleðar, fjórir jeppar og snjóbíll.


