
Nýliðstarf vetrarins hófst í lok september sl. og mætti fjöldi manns á tvo kynningarfundi. Nýliðum er ætlað að klára fjölda námskeiða á 1-2 vetrum og sýna fram á áhuga og getu til að komast á útkallsskrá björgunarsveitarinnar.
23 öflugir nýliðar hafa haldið áfram og mætt á fjölbreytta dagskrárliði það sem af er vetri. Fyrstu kynni nýliðanna af starfinu var eftir fyrirlestraröð um ferðamennsku og rötun en þá var látið reyna á þekkinguna og klæðnaðinn þar sem þau gengu í litlum hópum um óbyggð svæði með áttavita, kort og gps að vopni í ausandi rigningu.
Hópurinn hefur einnig fengið að spreyta sig í ýmsum smá verkefnum s.s. sigi, fyrstu hjálp, leit o.fl. og sannað hversu efnileg þau eru, okkur nýliðaforingjunum til mikillar ánægju.
Við sjáum fram á skemmtilega mánuði og hlökkum mikið til að leiða þennan hóp í vetur :)
Elva, Kári, Lilja og Sigfríð


