Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri
		<description>Súlur Björgunarsveit</description>
		<language>is</language>
Sameiginleg æfing á svæði 11
Laugardaginn 18. febrúar verður stór sameiginlega æfing fyrir sveitirnar á svæði 11. Æfingin fer fram á Dalvík og verða verkefni bæði á landi og sjó. Á æfingunni verður boðið upp á fjallabjörgunarverkefni, vélsleðaverkefni, bílaverkefni, snjóbílaverkefni, báta verkefni og almennverkefni. Á nógu verður að taka fyrir alla og um að gera að taka daginn frá, mæta með allan flotann og æfa grimmt þennan dag. 
Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig sem fyrst hér á síðunni. Nánari dagskrá verður auglýst síðar.</description>
Aðstoð vegna leka
    <description>Síðastliðinn föstudag var sveitin fengin til aðstoðar vegna vatnsleka á þremur stöðum í bænum. Ástæða vatnslekanna var að mikill snjór hafði safnast á þök húsanna, m.a. um nóttina og talsverð þýða kom ofan í það. Fóru 4 meðlimir Súlna á þessa staði og hreinsuðu snjó og ís af þökum á þessum stöðum en á einum staðnum þurfti aðstoð bíls með körfu til að komast á þakið. </description>
Gleðilegt nýtt ár!
    <description>Súlur björgunarsveitin á Akureyri óskar landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs og þakkar þann mikla stuðning og hlýhug sem var mjög áberandi í flugeldasölunni. Rekstur björgunarsveita er mikilvægt samfélagslegt verkefni og það er í raun stuðningur almennings sem leggur grunninn að því öfluga starfi sem við sinnum.
Gleðilegt ár og takk fyrir stuðninginn :)  
Hross föst í skurði o.fl.
    <description>Síðastliðinn föstudag var útkall vegna tveggja hrossa sem sátu föst í skurði. Mikið vatn var í skurðinum og stóðu aðeins höfuð þeirra upp úr. Fimm björgunarsveitarmenn fóru á staðinn með þurrgalla til að vinna í vatninu en fara þurfti ofan í skurðinn til að koma böndum á hrossin. Tók um klukkutíma að koma hrossunum upp úr skurðinum.</description>
Leit lokið
    <description>Hluti af einum jöklaleitarflokknumSvíinn sem leitað hefur verið að á og við Sólheimajökul síðan á fimmtudag fannst rétt fyrir hádegi í dag.  Viðbúnaður á leitarsvæðinu var umtalsverður og sem dæmi um það voru hart nær 300 manns við leit í dag.  Alls komu að leitinni um 40 manns frá Súlum, þar með talið svæðistjórnarfólk, jöklaleitarflokkar, almennir leitarflokkar og leitarhundar.  Gert er ráð fyrir að síðasti flokkur á vegum Súlna skili sér í hús þegar líður á nóttina.</description>