Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Hálendisvakt Góður hópur frá Súlum var í sumar á ferðinni á tveim bílum svæðinu að Fjallabaki.

Hálendisvakt

Mælifell á Mælifellssandi
Mælifell á Mælifellssandi
Góður hópur frá Súlum var í sumar á ferðinni á tveim bílum svæðinu að Fjallabaki.
Leið hópsins lá um Fjallabaksleið syðri og nyrðri, Breiðbak, Langasjó, Krakatinda ofl. leiðir en ljóst er að ekki vannst tími til að þræða alla vegi á þessum slóðum á einni viku.

Allt gekk vel og ekkert alvarlegt kom upp á, helstu verkefni voru viðgerðir á dekkum og tjaldvagni og svo voru nokkrir bílar dregnir upp úr ám sem þó voru ekki í verulegum vandræðum.

Það er ljóst að björgunarsveitirnar gegna mikilvægu hlutverki á hálendinu og geta sinnt leit og björgun með skömmum fyrirvara. Einnig eru björgunarsveitirnar að leiðbeina og aðstoða ferðamenn sem lenda í vandræðum og kanna einnig ástand vega ofl.




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf