Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Vorferð Súlna á Hvannadalshnúk! Fimmtán manna hópur gekk á Hvannadalshnúk þann 13. maí í blíðviðri :)

Vorferð Súlna á Hvannadalshnúk!

Fimmtán manna hópur gekk á Hvannadalshnúk þann 13. maí í blíðviðri :)

1. kafli - Toppaferð

Miðvikudaginn sl. lögðu nokkrir sprækir Súlufélagar í ferð suður á bóginn, nánar tiltekið í Skaftafell. Tilgangur ferðarinnar var að ganga á hæsta tind Íslands, Hvannadalshnúk, en hann er skv. Wikipedia 2109,6 m.y.s.  Ekið var um Öxi og dágott stopp tekið á Höfn þar sem ljúffengur humar fékk að sjálfsögðu að kitla bragðlaukana...

Lagt var upp á hnúkinn uppúr kl. 5 á fimmtudagsmorgninum. Uppgangan tók rúma sjö tíma en lentum við í biðröð síðasta spottann þar sem fjöldi fólks „átti leið þarna um“ (okkur reiknaðist til að milli 150-200 manns hafi farið upp þann daginn enda spáin slæm fyrir næstu daga).  Sólin tók á móti okkur þegar komið var upp á jökul og fengum við glæsilegt útsýni J Niður leiðin tók heldur skemmri tíma eða rúma fjórar klukkustundir.

Deginum var svo slúttað með grilluðu lambalæri að íslenskum sið og skriðu menn sælir og saddir, sárfættir og haltir inn í tjald að kveldi.

Það voru svo harðsperrtir garpar sem skriðu á fætur seint á föstudagsmorgni en deginum var eytt í jöklagöngu og ísklifri í undurfögru landslagi Svínafellsjökuls.

Myndir úr ferðinni! 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf