Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Landsæfing 2009 Laugardaginn 24. október var landsæfing Slysavarnarfélagsins Landsbjargar haldin á Reykjanesskaganum.

Landsæfing 2009

Fjallabjörgunarhópur að störfum
Fjallabjörgunarhópur að störfum
Laugardaginn 24. október var landsæfing Slysavarnarfélagsins Landsbjargar haldin á Reykjanesskaganum.


Súlur sendi tvo fjallabjörgunarhópa á æfinguna og þá fór einn félagi úr Súlum með leitarhund og annar fór í sérhæfð rústabjörgunarverkefni. Í allt fóru því rúmlega 20 björgunarsveitarmenn frá Súlum suður yfir heiðar á föstudeginum og gistu í húsnæði Björgunarsveitar Hafnarfjarðar um nóttina.

Æfingin hófst snemma morguninn eftir. Leitarhundurinn fékk að spreyta sig í leitarverkefnum á stóru svæði en fjallabjörgunarhóparnir leystu ýmis verkefni yfir daginn, bæði einir og sér og stundum í samstarfi við fjallabjörgunarhópa annara sveita. Meðal verkefna má nefna að ná þurfti þremur stúlkum úr sjálfheldu undir sjávarhömrum þar af einni í börum og að koma sjúkling upp fjallið Þorbjörn við erfiðar aðstæður. Einnig að hífa sjúklinga upp úr þröngum rýmum í byggingum svo og slösuðum "sauðfjárbónda" upp úr jarðfalli. Þá æfðu fjallabjörgunarhópur úr Súlum og frá Hafnarfirði með TF-EIR, þyrlu Landhelgisgæslunnar, móttöku á þyrlu, flutning á mannskap, val á lendingarstað og hífingar upp í þyrlu.

Að æfingu lokinni var öllum þátttakendum á æfingunni, alls um 400 manns, boðið í kvöldverð í Holtaskóla í Reykjanesbæ.

Æfingar sem þessi bæta mjög í reynslubankann og það sýndi sig að Súlur eiga marga björgunarsveitarmenn í allra fremstu röð á landinu.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf