þriðjudagur 01.desember 2009

Skipt var í 4 lið sem settu sig í réttar stellingar, með andlitsmálningu og herpum. Hefst hin mikla keppni um ofurnýliða Súlna með því að einn úr liðinu júmmaði sig upp 40 metra. Þetta reyndist erfiðara en það leit út fyrir að vera í fyrstu og voru menn farnir að lýkjast Elvis heitinum Presley þegar hann var upp á sitt besta. Þegar þetta kláraðist þeystist næsti af stað upp klifurvegginn, klifraði upp í loft og sýndu menn þar fína takta. Kortalestur og kunnátta manna í nágrenni Akureyrar var könnuð á meðan en einn úr hópnum fór gegnum litla þrautabraut í flotgalla. Að lokum var svo hlaupið út í snjókomuna, fundin rétt stefna á næsta póst og þar voru leyst nokkur skyndihjálparverkefni.
Öll stóðu þau sig vel og greinilegt er að við erum með efnilegan hóp í höndunum. En eins og í öllum keppnum var eitt lið sem skaraði framúr og ofurnýliðar 2009 eru: Kristinn, Elvar og Daníel. Þeir voru leystir út með veglegum verðlaunum.


