Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Nýafstaðin snjóflóðaleitaræfing Flott snjóflóðaleitaræfing var haldin í Hlíðarfjalli í gær.Byrjað var á töflufundi niðri í Hjalteyragötu þar sem farið var

Nýafstaðin snjóflóðaleitaræfing

Snjóflóð
Snjóflóð
Flott snjóflóðaleitaræfing var haldin í Hlíðarfjalli í gær.
Byrjað var á töflufundi niðri í Hjalteyragötu þar sem farið var yfir skipulag leitarsvæðis.
Boð um snjóflóð voru svo send út kl. 19:09.

Fór æfingin vel fram og ljóst að heilmikið lærðist af henni.

Gulli Búi og Anton sáum um æfinguna.
Bókleg æfing fyrir Nýliða 1 verður svo haldin í kvöld, miðvikudaginn 24. mars.

9 "fórnarlömb" voru á snjóflóðasvæðinu. 5 raunverulegar manneskjur og 4 tilbúnar.

Aðstæður voru gerðar sem raunverulegastar og tókst vel til. Einn sjónarvottur tók á móti leitarmönnum og lýsti aðstæðum með misgóðum upplýsingum. Moka þurfti upp einn ofkældan og hlúa að tveimur. Við leit var notast við snjóflóðaýla og stangir.

Leit tók um klukkustund þar til allir voru fundnir.

Fyrir hönd "fórnarlamba" þakka ég fyrir frábæra æfingu.
Sara Ómars


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf