miðvikudagur 24.mars 2010

Pétur og Simbi að gera sig klára í leit
Um helgina stóðust þeir Pétur Bergmann og hundurinn Simbi A-próf í snjóflóðaleit.
Þeir eru nú á úkallsskrá hjá Súlum sem snjóflóðarleitarteymi og einnig hjá Leitarhundum S.L..
Hjá Súlum eru nú tvö leitarhundateymi, þeir Hákon Sæmundssong og Djákni sem eru með A-próf í víðavangsleit og Pétur Bergmann og Simbi sem eru með A-próf í víðavangs- og snjóflóðarleit.
Þessi teymi eru til taks allt árið um kring til leitar af týndu fólki, hvort sem um ræðir leit á hálendinu, á víðavangi, innanbæjar, í og við vötn eða í snjóflóðum.
Aftur til hamingju Súlur
f.h. hundaflokks
Sara Ómarsdóttir


