Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Súlur 10 ára Súlur, björgunarsveitin á Akureyri var stofnuð 30. október 1999.

Súlur 10 ára

Súlur, björgunarsveitin á Akureyri var stofnuð 30. október 1999.

Sveitin varð til við sameiningu þriggja björgunarsveita á Akureyri, Hjálparsveitar skáta, Flugbjörgunarsveitarinnar og Sjóbjörgunarsveitarinnar Súlna.

Við getum með stolti sagt að Súlur hafi vaxið og dafnað og við stöndum fyllilega undir því að vera talin ein öflugasta björgunarsveit landsins.


Þegar litið er til baka þá er óhætt að segja að ótrúleg þróun hafi átt sér stað. Bílarnir hafa breyst mikið, fyrir 10 árum voru 44“ dekk á öflugustu bílum en í dag dugar ekkert minna en 46-49“. Reyndar eigum við enn sama snjóbílinn enda er þar um að ræða gríðarlega öflugt tæki. Annar búnaður hjá Súlum er eins og best verður á kosið og hefur miklum fjármunum verið varið til búnaðarkaupa síðustu ár.


En það eru ekki tæki og búnaður sem skapa öfluga björgunarsveit heldur eru það ósérhlífnir einstaklingar sem eru tilbúnir að verja miklum tíma í að sækja sér þjálfun og fræðslu. Kjölfestan í starfinu hjá Súlum er stór hópur sem ávallt er reiðubúinn til að sinna útköllum, oft við erfiðar aðstæður. Hjá Súlum starfar einn öflugasti undanfarahópur landsins þar sem mikill metnaður er lagður í fagleg og vönduð vinnubrögð. Ökumenn á bílum og vélsleðum sem Súlur eiga leggja oft á tíðum mikið á sig þar sem mörg dæmi eru um fjölda útkalla á sólarhring vegna veðurs og ófærðar. Sömu einstaklingar leggja einnig mikið á sig til að afla tekna því rekstur á stórri björgunarsveit kostar mikla fjármuni.


Þegar litið er yfir þann frábæra hóp sem er starfandi hjá Súlum í dag getum við horft björtum augum til framtíðar fullviss um að starfið hjá Súlum muni halda áfram að eflast.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf