Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Svipast um eftir þýskum ferðamönnum Laust eftir hádegi í dag óskaði Lögreglan á Akureyri eftir því

Svipast um eftir þýskum ferðamönnum

Laust eftir hádegi í dag óskaði Lögreglan á Akureyri eftir því við svæðisstjórn björgunarsveita á svæði 11 að hafin væri eftirgrenslan eftir tveimur þýskum ferðamönnum sem höfðu farið gangandi frá Grenivík á sunnudaginn norður Látraströnd og væru ekki komin til baka aftur til Grenivíkur.  Var talið að sést hafi til ferða fólksins á mánudeginum á leið norður Látraströnd.  Höfðu þau ekki skilið eftir neina ferðaáætlun, né látið neinn vita af ferðum sínum og einnig var óljóst hve mikinn búnað þau höfðu með sér og var því talið nauðsynlegt að kanna betur ferðir þeirra á þessu svæði.

Var flugvél send frá Akureyri og flaug hún norður Látraströnd og að Látrum og sáu flugmenn vélarinnar til mannaferða á Látrum og í kjölfarið var sendur björgunarbátur frá Grenivík út í Látur og fékkst þá staðfest að þarna var fólkið sem svipast hafði verið eftir og var það í góðu yfirlæti og kvaðst ætla að vera eitthvað lengur á svæðinu og njóta veðurblíðunnar.

 

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf