þriðjudagur 11.maí 2010
Samhliða búnaðarkaupum sem nú standa yfir hefur verið ákveðið að bjóða félögum upp á einstakt tækifæri til að versla sér nýjustu útgáfuna af Technical Rescue Riggers Guide.
Fyrir þá sem ekki vita er hér um að ræða yfirgripsmikla vasabók sem inniheldur mikilvægar upplýsingar um helstu aðferðir og kerfi fjallabjörgunar sem byggja á kennisetningum Rigging for Rescue.
Umrædd bók er æskileg og nánast nauðsynleg öllum sönnum aðdáendum og iðkendum fjallabjörgunar og eru félagar eindregið hvattir til að tryggja sér verkið.
Skráningarlisti liggur fyrir á korktöflu í H12. Áætlað verð er ca 4000 íkr. Skráið ykkur sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Anton, 864-2653


