laugardagur 14.mars 2009
Komið með ferðamennina til byggða
Súlur, björgunarsveitin á Akureyri var kölluð út í gærkvöldi til aðstoðar tveimur frönskum skíðamönnum sem voru í vandræðum við Bergvatnskvisl á Sprengisandi. Ferðalangarnir voru á leið frá Laugafelli í Nýjadal og lentu þeir í mjög vondu veðri og höfðu misst frá sér tjald og óskuðu því eftir aðstoð.
Snjóbílar frá Súlum og Dalbjörg voru sendir af stað, ásamt vélsleðum og náði snjóbíll frá Dalbjörg til fólksins um kl. 22 og flutti það í Laugafell. Vegna mjög slæms veður var ákveðið að bíða átekta í Laugafelli í nótt og koma fólkinu síðan til Akureyrar í dag.
Snjóbíll Súlna beið við Bergland í nótt og verða snjóbílarnir í samfloti til byggð þegar liður á daginn.


