laugardagur 17.maí 2008
Mynd / úr myndasafni
Í dag var sveitin kölluð út til leitar að vélsleðamanni á Flateyjardal. Var maðurinn í hópi vélsleðamanna sem var í ferð um Flateyardal og nágrenni. Þegar hópurinn var komin út að Urðarkoti þurfti maðurinn að snúa við og fara til baka vegna tímaskorts. Þegar hann skilaði sér ekki á tilsettum tíma til byggða var hafin leit að honum.
Sleðahópur sveitarinnar ásamt björgunarsveitarmönnum frá Grenivík voru rétt ófarnir úr húsi þegar tilkynning kom um að maðurinn væri fundinn við Heiðarhús, heill á húfi. Hafði vélsleði mannsins bilað og því komst hann ekki áfram.


