fimmtudagur 19.nóvember 2009

Á sjötta tímanum í dag var sveitin kölluð út til leitar að manni í Kjarnaskóg sem saknað hafði verið frá því fyrr í dag.
Á fjórða tug manna mættu í útkallið og voru í þann mund að fara úr húsi þegar tilkynnt var um að maðurinn væri fundinn.


