sunnudagur 31.ágúst 2008
Á þriðja tímanum í dag var Súlur, björgunarsveitin á Akureyri og Björgunarsveitin Ægir á Grenivík kallaðar út til aðstoðar konu sem slasast hafði á göngu á Ystuvíkurfjalli við austanverðan Eyjafjörð. Um 17 björgunarsveitarmenn fóru á staðin og báru konuna í sjúkrabörum niður fjallið og komu henni í sjúkrabíl sem flutti hana á sjúkrahúsið á Akureyri. Tók aðgerðin um tvær klst og tókst vel.


