mánudagur 23.júní 2008
Á fjórða tímanum í dag var sveitin kölluð út til að koma slösuðum vélhjólamanni til aðstoðar sem hafði fótbrotnað þegar hann velti hjólinu á Garðsárdal í Eyjafirði.
Hafði sveitin talsverðan viðbúnað og sendi 20 menn á þremur bílum á vettvang því ekki var vitað í upphafi hvort hægt væri að komast að manninum á bílum og var því gert ráð fyrir að það þyrfti að bera hann í sjúkrabörum einhverja vegalengd.
Gekk vel að komast að manninum hlú að honum , koma í bíl og flytja á sjúkrahús , var hann komin þangað um tveim tímum eftir að útkall barst sveitinni.
30 manns tóku tók þátt í aðgerðinni, 20 menn frá Súlum og 9 frá Dalbjörgu, auk svæðisstjórnarmanna.


