laugardagur 28.mars 2009
Um kl. 14.30 í dag var óskað eftir aðstoð sveitarinnar við að ná fólki sem sat fast í stólalyftunni á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli. Rúmlega 100 manns voru í lyftunni þegar hún stöðvaðist vegna bilunar. Félagar sveitarinnar ásamt starfsfólki skíðasvæðisins losuðu um 70 manns úr lyftunni þegar tókst að koma henni af stað aftur á svokallaðri neyðarkeyrslu. Ekkert amaði að fólkinu þegar það kom úr lyftunni en mörgum var þó orðið kalt. Veður á svæðinu er ágætt, hægur vindur, skýjað og vægt frost.
Um 20 manna hópur frá sveitinni tók þátt í aðgerðinni sem gekk vel.


