laugardagur 06.desember 2008
Í dag var sveitin kölluð út til aðstoðar manni sem slasast hafði við ísklifur við svokallaðan Einhamar í Hörgárdal.
Var sendur 15 manna hópur á tveimur bílum, ásamt sjúkrabíl á staðin. Mjög torfært var að svæðinu og var fengin öflug dráttarvél til að flytja manninn niður á þjóðveg þar sem sjúkrbíll beið og flutti hann á sjúkrahús. Maðurinn er ekki mikið slasaður og líður honum vel eftir atvikum.


