laugardagur 22.ágúst 2009

Fyrr í dag voru undanfarar sveitarinnar kallaðir út þegar tilkynning barst um að fullorðinn maður, sem var í hópi göngufólks á Herðubreið hafði fengið hjartaáfall.
Átta manna hópur frá sveitinni var sendur áleiðis austur á tveimur bílum og var komin í Herðubreiðarlindir þegar boð komu um að búið væri að ná manninum niður af fjallinu með þyrlu frá Þyrluþjónustunni, var hópnum þá snúið við.


