Súlur | Björgunarsveitin á Akureyri

Útkall á Reykjaheiði Aðfaranótt sunnudags var Súlur, björgunarsveitin á Akureyri kölluð út ásamt Björgunarsveitunum á Dalvík og Ólafsfirði til leitar að

Útkall á Reykjaheiði

Aðfaranótt sunnudags var Súlur, björgunarsveitin á Akureyri kölluð út ásamt Björgunarsveitunum á Dalvík og Ólafsfirði til leitar að konu sem hafði ekki skilað sér til baka á tilsettum tíma eftir gönguferð yfir Reykjaheiði.

Skildi konan bíl sinn eftir við Reyki í Ólafsfirði og ætlaði að ganga yfir Reykjaheiði til Dalvíkur.  Þegar hún skilaði sér ekki til Dalvíkur á tilsettum tíma fór lögreglan að grenslast fyrir um hana en þegar það bar ekki árangur voru björgunarsveitir, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar kallaðar út til leitar.  Eftir stutta leit fann þyrlan konuna í Reykjadal heila á húfi.

Alls tóku um 30 manns þátt í aðgerðinni, þar af 13 menn frá Súlum.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf