laugardagur 06.febrúar 2010
Svæðisstjórn björgunarsveita á svæði 11 hefur fengið afhenta gátt sem tengir saman með ákveðnum búnaði VHF kerfið og Tetra sem gerir það að verkum að notendur í VHF kerfinu geta talað við notenda í Tetrakerfinu og svo öfugt.
Þessi búnaður kemur til með að bæta enn frekar aðgerðastjórn og fjarskipti á erfiðum svæðum og opnar einnig á þann möguleika að björgunarsveitir geta átt betri samskipti við aðra aðila sem ekki nota Tetra eins og sjómenn og jeppa- og vélsleðamenn.Búnaðurinn er staðsettur í H12 en er færanlegur og því hægt að fara með hann hvert á land sem er.


